Hvað gerir SSL-skírteini?
SSL-skírteini gerir vafranum kleift að staðfesta lénið og dulkóða samskipti með HTTPS. Það ver gögn á leiðinni milli gestsins og vefsins, en kemur ekki í stað uppfærslna, öruggra lykilorða eða afrita.
SSL og HTTPS
Þegar HTTPS er virkt dulkóðast umferðin milli vafra og servers. Vafrinn staðfestir jafnframt að skírteinið gildi fyrir lénið sem gesturinn opnaði.
Sjálfvirk endurnýjun
AutoSSL getur gefið út og endurnýjað skírteini sjálfvirkt ef DNS vísar rétt, lénið svarar og engin staðfestingarhindrun er til staðar. Vöktun á gildistíma er samt mikilvæg því DNS- eða stillingabreyting getur stöðvað endurnýjun.
Algengar villur
Nafn í skírteini passar ekki við lénið, skírteini er útrunnið, milliskírteini vantar eða síðan hleður myndum og skriptum yfir ódulkóðað HTTP. Lausnin fer eftir orsökinni; nýtt skírteini eitt og sér lagar ekki alltaf blandað efni.
Skýr svör
Er ókeypis SSL öruggt?+
Já. Viðurkennt ókeypis skírteini getur veitt sömu dulkóðun og greitt domain-validated skírteini. Munurinn liggur oft í þjónustu og tegund staðfestingar.
Bætir HTTPS leitarniðurstöður?+
HTTPS er eðlileg grunnkrafa fyrir nútímavef og hjálpar trausti og tæknilegum gæðum. Það eitt tryggir þó ekki góða röðun.
Dugar SSL til að gera vef öruggan?+
Nei. Einnig þarf uppfærslur, aðgangsstýringu, afrit, vöktun og örugga meðferð gagna.
Tengt efni og næstu skref
Efnið er almennt fræðsluefni en ekki loforð um tiltekið þjónustustig. Tæknileg útfærsla er alltaf metin út frá viðkomandi vef og umhverfi.