Smá hjálp.
Stórt skref áfram.
Svör við algengum spurningum og fyrstu skrefin með hýsinguna þína.
Hvaða hýsingarpakka á ég að velja?
Byrjun hentar einum vef og minni verkefnum. Vöxtur gefur meira pláss og fleiri pósthólf. Kraftur hentar stærri verkefnum eða nokkrum vefjum. Hafðu samband ef þú ert í vafa.
Get ég flutt vefinn minn til ykkar?
Já, sendu okkur upplýsingar um vefinn, núverandi hýsingu og pósthólf. Við förum yfir umfang, verð og framkvæmd áður en flutningur hefst.
Þarf ég að eiga lén áður en ég panta?
Þú tilgreinir lénið þitt þegar þú pantar. Lénaskráning er ekki innifalin í hýsingarverði. Við getum leiðbeint þér um skráningu og tengingu léns.
Hvernig virka greiðslur og endurnýjun?
Þú greiðir reikninga með korti á greiðslusíðu Teya. Nýr reikningur stofnast fyrir næsta tímabil. Þessi leið felur ekki í sér sjálfvirka kortafærslu.
Hvar stjórna ég vefnum og póstinum?
Á Mínum síðum sérðu þjónustu, reikninga og samskipti. Tæknileg umsýsla vefja og pósthólfa fer fram í ISPConfig stjórnborðinu.
Fyrstu skrefin
- Skráðu þig inn á Mínar síður og athugaðu stöðu pöntunar.
- Greiddu ógreiddan reikning ef við á.
- Þegar uppsetningu er lokið finnurðu tengil á ISPConfig undir þjónustunni.
- Leitaðu til þjónustuvers áður en þú breytir nafnaþjónum eða færir póst.